Ástand lundastofnsins virðist hafa tekið heldur betur kipp til hins betra. Lundapysjunum rignir hreinlega niður og hafa aldrei verið vigtaðar fleiri pysjur en í ár. Mælingar Pysjueftirlitsins hófust 2003 en nú eru pysjurnar sem mældar hafa verið, orðnar 1663, sem er meira en metárið 2007, þegar mældar voru 1654 pysjur. Og talan á enn eftir að hækka því enn finnast pysjur í Eyjum.