Átök á aukafundi

Boðað var til aukafundar bæjarráðs til þess að leiðrétta rangar upplýsingar sem fram komu á bæjarráðsfundi á mánudaginn var, þann 25. maí, um samning Vestmannaeyjabæjar og Sjúkratrygginga Íslands um rekstur Hraunbúða.

Frá árinu 2010 hefur Vestmannaeyjabær greitt rúmlega 500 m.kr. með rekstri Hraunbúða, sem lögum skv. ríkið ber ábyrgð á og ríkissjóður á að greiða fyrir. Kröfur ríkisins til þjónustunnar hafa aukist mikið undanfarin ár, en framlög til starfseminnar staðið í stað. Við þetta verður ekki unað og ósanngjarnt að skattgreiðendur í Vestmannaeyjum greiði fyrir þjónustu sem ríkið ber ábyrgð á.

Fyrirhugaður er fundur bæjarráðs og heilbrigðisráðherra um málefni Hraunbúða. Gert er ráð fyrir að fundað verði í byrjun júní.

Beðist velvirðingar á mistökum
Hið rétta er að síðasti samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Vestmannaeyjabæjar um rekstur Hraunbúða var undirritaður 19. desember 2019 og gildir hann frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021. Samningnum má segja upp í heild sinni eða einstökum rýmum með 6 mánaða fyrirvara, miðað við mánaðarmót, þó ekki fyrr en 6 mánuðum eftir undirritun. Uppsögn skal tilkynnt skriflega.

Beðist er velvirðingar á þessum mistökum sem skýrast af mannlegum mistökum.

Segja upp samningnum
Bæjarráð samþykkir samhljóða að tilkynna Sjúkratryggingum Íslands og heilbrigðisráðherra um að bærinn segi umræddum samningi upp. Jafnframt verði sömu aðilum tilkynnt að Vestmannaeyjabær sjái sig knúinn til að skila verkefni á rekstri dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í hendur SÍ og að stofnunin sjálf eða nýir rekstraraðilar taki við. Bæjarstjóra er falið að koma þessum upplýsingum til ráðherra eftir fund bæjarstjórnar þann 28. maí nk.

Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar geti treyst upplýsingum
Fulltrúi D lista bókaði eftirfarandi: Undirrituð harmar að þær upplýsingar sem lagðar voru fram á síðasta fundi bæjarráðs í umræddu máli hafi ekki verið réttar og að samþykkt hafi verið niðurstaða sem efnislega var röng og varð þess valdandi að boða þurfti til aukafundar bæjarráðs. Samkvæmt bæjarmálasamþykkt undirbýr formaður bæjarráðs í samráði við bæjarstjóra bæjarráðsfundi. Nauðsynlegt er að í veigamiklum málum sem lúta að hagsmunabaráttu sveitarfélagsins gagnvart ríkinu sé undirbúningur máls og þekking á samningum fullnægjandi. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar geti treyst á að þær upplýsingar sem lagðar eru fram á fundum sveitarfélagsins séu réttar.

Samvinnu í bæjarráði virðist vera lokið
Fulltrúar H- og E- lista svöruðu með bókun: Það er miður að þeirri góðu samstöðu og samvinnu flokka í bæjarráði og bæjarstjórn í Covid ástandinu í vetur virðist nú vera lokið úr því að fulltrúi sjálfstæðisflokksins vill gera stórmál úr því að verið sé að leiðrétta mannleg mistök sem voru gerð við vinnslu fundargerðar síðasta bæjarráðsfundar. Ekki er gott að sjá hvernig svona upphlaup þjónar hagsmunum bæjarbúa.

Góðri samvinnu og samstarfi er engan veginn lokið
Fulltrúi D lista svaraði þá: Góðri samvinnu og samstarfi er engan veginn lokið a.m.k. af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir aðfinnslur vegna stjórnsýslu síðasta fundar bæjarráðs. Eðlilegt hlýtur að þykja að bæjarfulltrúi bendi á að honum þykir miður hvernig fyrir þessu máli fór.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.