Næstkomandi mánudag verður stórleikur í Pepsídeild karla þegar efsta lið deildarinnar, ÍBV sækir Breiðablik heim en Blikar eru í öðru sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV. Framhald Íslandsmótsins ræðst á leiknum, sigur ÍBV kemur þeim í ökumannssætið og jafntefli í raun og veru líka. Tap þýðir hins vegar að Breiðablik nær efsta sætinu af ÍBV. Mikill áhugi er fyrir leiknum í Eyjum og hefur Eimskip því ákveðið að setja á aukaferð að miðnætti á mánudaginn, til að ferja stuðningsmenn aftur heim.