
Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hafa ekki tekið efnislega afstöðu til spurninga Eyjafrétta um útboð sveitarfélagsins vegna reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Minnihlutafulltrúi gagnrýnir hins vegar að útboðsskilyrði hafi ekki verið lögð fyrir bæjarráð áður en útboðið var auglýst og segir hæfiskröfur útiloka marga mögulega bjóðendur.
Þrír bæjarfulltrúar sem svöruðu fyrirspurn Eyjafrétta vísuðu allir til þess að ekki væri unnt að tjá sig um málið þar sem útboð væri í gangi.
Njáll Ragnarsson sagði:
„Ég get því miður ekki tjáð mig um málið þar sem útboð er í gangi.“
Eyþór Harðarson sagði:
„Ég vona að þú hafir skilning á því að við getum ekki verið að tjá okkur um útboðið. Consensa sér um útboðið og hefur það áður komið fram að allar fyrirspurnir varðandi það skuli sendar á þann aðila.“
Helga Jóhanna Harðardóttir sagði:
„Consensa sér um útboðið fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og skulu allar fyrirspurnir er varða það sendar á netfangið consensa@consensa.is. Það er ekkert annað sem ég vil koma á framfæri um málið.“
Ekki var tekin efnisleg afstaða til þeirra spurninga sem lagðar voru fyrir.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að kjörnir fulltrúar hafi haft takmarkað svigrúm til að fjalla um málið.
Hún bendir á að útboðsgögn hafi ekki verið lögð fyrir bæjarráð áður en útboðið var auglýst og að bæjarfulltrúar hafi því ekki haft tækifæri til að fara yfir skilmálana.
„Ég sem kjörinn fulltrúi hafði því á engum tímapunkti möguleika á að spyrja út í málið áður en það var sett í auglýsingu,“ segir Hildur.
Hún segir jafnframt að umræðan hafi verið takmörkuð eftir að útboðið var auglýst:
„Þegar það var komið í auglýsingu þá virtist það illa séð að vera að ræða málið í pontu bæjarstjórnar á meðan það væri í útboðsferli.“
Í bókun sem Hildur og Margrét Rós Ingólfsdóttir lögðu fram í bæjarstjórn kemur fram að hæfisskilyrði útboðsins séu mjög ströng. Þar segir meðal annars að skilyrðin geri „afar fáum kost á að taka þátt“ og að við fyrstu sýn hafi ekki verið gætt að meðalhófsreglu stjórnsýslu.
Sjá einnig: Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Í fyrirspurn Eyjafrétta var meðal annars spurt:
Ekki var tekin efnisleg afstaða til þessara spurninga í svörum ofangreindra bæjarfulltrúa.
Ekki bárust svör frá eftirtöldum bæjarfulltrúum innan þess tímafrests sem gefinn var:
Íris Róbertsdóttir
Páll Magnússon
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Gísli Stefánsson
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Eins og Eyjafréttir hafa áður greint frá hefur kæra verið lögð fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðsins. Í kærunni er meðal annars haldið fram að hæfiskröfur útboðsins takmarki samkeppni verulega.
Málið vekur einnig athygli í ljósi þess að fyrra útboð sveitarfélagsins um sama verkefni var ógilt og Vestmannaeyjabær talinn bótaskyldur vegna brota á lögum um opinber innkaup. Rétt er að geta þess að Eyjafréttir sendu fyrir nokkrum vikum fyrirspurnir um málið á Consensa. Engin svör hafa borist þaðan.