Bæjarstjórn samþykkti yfirtökuna á rekstri Herjólfs
Nú fyrir skömmu lauk fundi í bæjarstjórn Vestmannaeyja þar sem fjallað var um samning milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um rekstur Herjólfs sem lagður hefur verið fram af hálfu Ríkisins. Á fundinum samþykkti bæjarstjórn samninginn einróma og þar með að taka við rekstri Herjólfs eftir að nýtt skip hefur þjónustu eigi síðar en 8. okt. 2018
Samningurinn sem er til tveggja ára felur í sér:
* Rekstur Herjólfs verður í sjálfstæðu félagi í eigu Vestmannaeyjabæjar sem þýðir að hann verður algerlega og með öllu óháður öðrum rekstri sveitarfélagsins.
* Ferðum mun á samningstímanum fjölga um að lágmarki hátt í 600 á ári. Gert er ráð fyrir áætlunarferðum frá 06.30 á daginn fram til miðnættis.
* Skipið sigli alla daga ársins, þar með talið á stórhátíðum.
* Afsláttur fyrir heimamenn fer úr 40% í 50% og verður veittur án þess að slíkt reyni á inneignakerfi líkt og nú er. Gjaldskrá verður að öðru leyti nánast óbreytt frá því sem nú er. �?ar með talið að sama gjaldskrá gildi í Landeyjahöfn og �?orlákshöfn.
* Störfum um borð mun fjölga nokkuð frá því sem nú er enda gert ráð fyrir að skipið verði mun meira í notkun. Gert er ráð fyrir þremur áhöfnum og tveimur vöktum hvern dag.
* Herjólfur verður til staðar sem varaskip og nýttur ef þörf verður á.
* Bókunarkerfi verður tekið til algerrar endurskoðunar. �?ar með talið er gert ráð fyrir að notendur geti bókað ferðir, greitt þær, breytt bókunum og sinnt öllum öðrum þátttum í gegnum símaforrit og/eða tölvu.
* Upplýsingagjöf til notenda verður stóraukin og höfuðáhersla lögð á þjónustu við heimamenn og gesti þeirra.
* Verði hagnaður af rekstri hins opinbera hlutafélags verður honum varið til að auka þjónustu og/eða lækka gjaldskrá.
Bæjarstjórn fagnar þessu stóra skrefi í samgöngumálum Vestmannaeyinga, sem vart verður saman jafnað. Með því færist rekstur Herjólfs til muna nær því áratuga markmiði Eyjamanna að hann sé séður sem þjóðvegur og þjónusta og gjaldskrá taki fyrst og fremst mið af því.
Bæjarstjórn þakkar stýrihópi um yfirtökuna vel unnin störf. �?á færir bæjarstórn núverandi ráðherra Sigurði Inga Jóhannssyni og fyrrverandi ráðherra Jóni Gunnarssyni hjartans þakkir fyrir þann velvilja og eindregna stuðning sem störf þeirra voru við gerð þessa samnings.

Nýjustu fréttir

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.