Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Stjörnunnar sagðist í samtali við Morgunblaðið vera alsæll með að fá Engel til landsins en hún hefur leikið undir hans stjórn hjá tveimur félögum; ÍBV og þýska liðinu Weibern. ,,Hjá Weibern lék hún sem skytta og sem línumaður hjá ÍBV í fyrsta skipti á ferlinum. Hún er því mjög fjölhæf og spilar vel fyrir liðið.
Töluverðar breytingar verða á leikmannahópi meistaraliðsins en Jóna Margrét Ragnarsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Jafnframt er Kristín Guðmundsdóttir gengin í Val og Anna Blöndal er í fríi frá handknattleik í sumar og hefur ekki tekið ákvörðun um framhaldið. Auk þess er fyrirliði liðsins, Kristín Clausen, með slitið krossband. Á móti kemur að Stjarnan hefur fengið Ástu Agnarsdóttur frá FH og tveir leikmenn snúnir til baka eftir meiðsli, þær Arna Gunnarsdóttir og Harpa Eyjólfsdóttir
www.mbl.is greindi frá.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.