Í gær rann út framboðsfrestur til röðunar fyrir Sjálfstæðisflokk Vestmannaeyja. Undanfarnar vikur hef ég ekkert legið á því að áhugi minn gagnvart starfi við pólitík hefur dvínað um nokkuð mörg prósent. �?að hefur samt alltaf verið eitthvað sem togar í mig, því hefur innri barátta um hvort ég muni bjóða fram krafta mína eða ekki verið mér erfið.
Á aðalfundi Sjálfstæðsflokksins síðasliðinn mánudag lét ég af störfum sem formaður félagsins eftir tveggja ára setu. �?g skil sátt við þá stöðu og óska ég nýjum stjórnarmönnum velfarnaðar. Hins vegar fann ég það eftir þann fund að viljinn er ennþá sterkur að gera betur og vinna að þeim skemmtilegu verkefnum sem framundan eru.
�?g hef setið í bæjarstjórn síðustu 4 ár og hef haft mikla ánægju af. �?g tel mig hafa vaxið í starfi og geti enn gert betur. �?ví ákvað ég að setja nafnið mitt í pott og bauð mig fram í 4-5 sæti.
�?g hef fulla trú að flokknum muni vegna vel því það er aragrúi að góðu fólki sem starfar með flokknum og er tilbúið að leggja sitt að mörkum til þess að gera vel.
Birna �?órsdóttir Vídó