Hótel Vestmannaeyjar hlaut á dögunum gæðavottun frá Vakanum en Vakinn er nýtt samræmt gæðakerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu sem stýrt er af Ferðamálastofu Íslands. �?átttakendur í Vakanum er hátt í hundrað og er annar eins fjöldi enn í úttektarferli. Starfsemi þátttakenda hjá Vakanum er afar fjölbreytt og í raun allt frá hótelum og gistiheimilum yfir í kaffi- og veitingahús.
Hótel Vestmannaeyjar er samkvæmt Vakanum flokkað sem þriggja stjörnu hótel með svokallaða �??superior�?? merkingu sem þýðir að hótelið sé gjaldgengt sem fjögurra stjörnu hótel en kjósi þrjár stjörnur vegna þeirra skilyrða sem fjögurra stjörnu hótelum eru sett. �?au skilyrði snúa að miklu leyti að lúxusþjónustu á borð við herbergisþjónustu allan sólarhringinn og þar fram eftir götunum.
Snýst um að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu
Vakinn er byggður á nýsjálensku gæðakerfi fyrir ferðaþjónustu sem kallast Qualmark og er markmið hans fyrst og fremst að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja. Vakinn er verkfæri þátttakenda til að auka gæði og öryggi, veitir þeim leiðsögn og leggur til margvísleg hjálpargögn og gátlista sem má nýta til að bæta rekstur og starfshætti í fyrirtækinu.
Gæðakerfi Vakans er tvíþætt, annars vegar skiptist það í stjörnuflokkun fyrir gististaði og hinsvegar í flokkun á annarri ferðaþjónustu en gistingu. Vakinn býður einnig upp á umhverfiskerfi og er tilgangurinn að fá sem flesta innlenda ferðaþjónustuaðila til að taka þátt í umhverf-isstarfi og hljóta viðurkenningu. Hótel Vestmannaeyjar byrjar í svokölluðum bronsflokki en til þess að fá þá vottun þarf hótelið að sinna sorpflokkun og öðru slíku samviskusamlega. Allir gististaðir þurfa að uppfylla lágmarks viðmið sem telja þó til mismunandi stiga. Heildarfjöldi stiga í lokin segir svo til um það í hvaða stjörnuflokk viðkomandi gististaður raðast, sem getur verið allt frá einni stjörnu og upp í fimm stjörnur, með �??superior�?? möguleika fyrir hótel. Ef fyrirtækið hefur ekki náð tilsettum lágmörkum, hafa forsvarsmenn þess þrjá mánuði til að bæta þau atriði sem ekki uppfylltu tiltekin viðmið.
Ávinningurinn af því að geta flaggað merkjum Vakans felst m.a. í því að geta kynnt fyrir viðskiptavinum að fyrirtækið hafi verið tekið út af óháðum aðila og það hafi staðist viðurkenndar gæðakröfur. Að sama skapi er viðurkenning fyrir þátttöku í umhverfiskerfinu rós í hnappagat fyrirtækisins því vitundarvakning á sviði umhverfismála er vaxandi og viðskiptavinir beina í auknum mæli viðskiptum sínum til fyrirtækja sem sýna fram á ábyrgð í umhverfismálum.
Strangar siðareglur
Gæðavottun frá Vakanum þýðir einnig að fyrirtæki þurfa að lúta ströngum siðareglum í þjónustu sinni, svo sem veita viðskiptavinum sínum kurteislega og áreiðanlega þjónustu, virða og viðhalda trúnaði og þagmælsku gagnvart viðskiptavinum, hafa heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi í öllum samskiptum og viðskiptum, sýna öllum viðskiptavinum sömu virðingu og tillitsemi óháð t.d. kyni, uppruna, kynhneigð og trú og tryggja að allar upplýsingar til viðskiptavina séu réttar og sannar svo eitthvað sé nefnt.
Gestirnir ánægðari
Í samtali við Eyjafréttir sagði Magnús Bragason, eigandi Hótels Vestmannaeyja, viðurkenninguna hafa mikla þýðingu fyrir sig. �??�?essi vottun hefur mikið að segja fyrir erlendar ferðaskrifstofur sem vilja versla við okkur, fá með þessu traust á því sem þau eru að kaupa. Við höfum metnað til að veita gestum okkar góða þjónustu. Með innleiðingu á gæðaeftirliti Vakans höfum við fengið ráðleggingar fagfólks um hvað við getum gert betur. Við höfum fylgt þessum ráðleggingum og finnum hverju það skilar. Gestir okkar eru ánægðari og við öruggari þar sem við vinnum undir handleiðslu Vakans,�?? sagði Magnús en ferlið hefur tekið langan tíma. �??Við byrjuðum þetta ferli fyrir tveimur árum. Má segja eftir að við opnuðum nýju álmu hótelsins.�??
Hver verða næstu skref hjá ykkur? �??Við ætlum að halda áfram að byggja upp fyrirtækið og veita góða þjónustu. �?að var rétt ákvörðun á sínum tíma að stækka hótelið. �?að hefur komið sér vel fyrir okkur sem og aðra ferðaþjónustuaðila í Eyjum. Við erum nú að vinna að framtíðarsýn og erum bjartsýn á framtíð ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum,�?? sagði Magnús að lokum.