Blái herinn hertekur Vestmannaeyjar

Tómas Knútsson, hershöfðingi Bláa hersins ætlar að dvelja hér fram yfir helgi við það að þrífa Eyjuna. �?Um helgina er Toyota sýning hérna og þar sem Toyota styrkir Bláa herinn mjög myndarlega þá ákvað ég að koma hingað og leggja mín lóð á vogarskálarnar. �?g er búinn að vera hreinsa upp hér í kringum höfnina og út á Eiði. Á sumardaginn fyrsta ætlum við svo að fá nokkra hressa Eyjapeyja til að ganga í Bláa herinn og saman ætlum við að þrífa strandlengjuna við innsiglinguna, sem er svona það fyrsta sem gestir Eyjanna sjá og því nauðsynlegt að hún sé þokkaleg hrein.�?

Tómas, sem kemur frá Reykjanesbæ hefur verið iðinn við kolann á Reykjanesinu en alls segist hann hafa hreinsa upp um 200 tonn af rusli þar. �?Síðan þá hefur margt breyst á Reykjanesinu og endurvinnsluferli hefur farið í betri farveg en áður. Vestmannaeyjar eru ofboðslega fallegur staður en því miður er víða pottur brotinn. �?g reyni að benda mönnum á það sem betur mætti fara og svo funda ég líka með fulltrúum bæjarins og húðskamma þá,�? segir Tómas og hlær.

Fyrir þá sem vilja gerast málaliðar í Bláa hernum er hinum sömu bent á að klukkan 10 að morgni sumardagsins fyrsta mun Blái herinn koma saman við húsakynni útgerðarinnar Bergs/Hugins við Herjólfsbryggju og í kjölfarið verður tekið til hendinni.

�?Svo á ég örugglega eftir að útnefna einn herforingja hér í Eyjum sem mun fylgja eftir því sem ég er að predika,�? sagði Tómas að lokum.

Nýjustu fréttir

Fundur bæjarstjórnar í beinni
Öflug íslenskukennsla í febrúar
Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri
Skjárinn sem stal æskunni
Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.