Í pistli sem birtur er á vef Starfsgreinasambandsins í dag er varpað skýru ljósi á þá alvarlegu stöðu sem nú blasir við á fjölda atvinnusvæða á landsbyggðinni. Þar segir: Það að dylst engum sem fylgist með umræðunni að blikur eru á lofti í atvinnumálum og innan aðildarfélaga SGS er um þessar mundir barist á öllum vígstöðvum við að verja störf.
Skammt er síðan rekstur kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka stöðvaðist en hátt í 200 störf tengjast beint starfsemi PCC að meðtöldum undirverktökum, það er fyrir utan afleidd störf sem skipta hundruðum.
Á Grundartangasvæðinu hefur bilun hjá Norðuráli leitt til rekstrarstöðvunar á tveimur þriðju hluta álframleiðslunnar. Þá ríkir einnig mikil óvissa hjá Elkem á Grundartanga eftir að ljóst var að Ísland nýtur ekki undanþágu frá verndaraðgerðum ESB gegn innfluttum kísilmálmi.
Í sjávarútveginum eru einnig blikur á lofti. Í Vestmannaeyjum hefur t.a.m. 48 manns verið sagt upp í fiskvinnslu ásamt 20 sjómönnum og í kjölfarið hafa stoðfyrirtæki við sjávarútveginn í Eyjum einnig þurft að fækka starfsfólki.
Á Vestfjörðum blasir nú alvarleg staða við fiskvinnslum og útgerðum verði áform stjórnvalda um afnám línuívilnunar, uppbóta fyrir rækju og skel og skerðingar á byggðakvóta að veruleika. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum vegna þessa.
Stór hluti gjaldeyristekna þjóðarinnar verður til á landsbyggðinni með framleiðslu, útflutningi og nýtingu auðlinda. Þær gjaldeyristekjur sem þannig verða til standa að mestu leyti undir velferðarkerfi landsmanna. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú blasir við er því skýr og eðlileg krafa að stjórnvöld standi með landsbyggðinni. Án öflugrar atvinnustarfsemi á svæðum sem skapa þau verðmæti sem þjóðarbúið byggir á er velferðarkerfið í hættu og efnahagsleg framtíð landsins sett í uppnám. Aðgerðir stjórnvalda á næstu misserum munu því skipta sköpum fyrir sjálfbæra verðmætasköpun og stöðugleika um allt land.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst