Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári

Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. þann 10. apríl kom fram að félagið hafi náð sterkum viðsnúningi í rekstri á árinu 2025 þrátt fyrir krefjandi rekstrarskilyrði, takmarkaðan loðnukvóta og aukið álag á íslenskan sjávarútveg. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VSV sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir jafnframt að heildartekjur hafi aukist um 4,8% og […]
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma

Bilun hefur komið upp í vélbúnaði Herjólfs og siglir skipið því nú á takmörkuðu afli. Af þeim sökum hefur siglingatími til Þorlákshafnar lengst og er nú að minnsta kosti þrjár og hálf klukkustund. Unnið er að því að finna lausn á vandanum og verða frekari upplýsingar veittar þegar þær liggja fyrir. Tilkynning þessi kemur frá […]
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Guðni Hjörleifsson Aldur: 68 ára Fjölskylda: Giftur Rósu Sveinsdóttir og saman eigum við þrjú börn, Ástu Björk, Hjörleif og Víði Þór og fimm barnabörn, Magnús, Kristófer Dag, Krumma, […]
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli

ÍBV hefur í dag keppni í Bestu deild karla þegar liðið tekur á móti FH á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 13:00. Upphitun hefst klukkan 12:00 þar sem stuðningsmenn geta komið sér í gírinn fyrir leikinn. Þá verða grillaðir borgarar til sölu á svæðinu og því tilvalið að mæta snemma, njóta stemningarinnar og styðja við bakið […]
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum

Vél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Vestmannaeyjar í dag og vakti töluverða athygli. Mörgum Eyjamanninum var brugðið þegar þota Icelandair flaug í um 30 metra hæð yfir bæinn um klukkan 15.30 í dag. Kom hún yfir bæinn úr austri. Skreið yfir nýja hraunið og yfir bæinn með miklum látum. Meðfram Heimakletti, yfir bæinn og […]
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag og þar til annað verður tilkynnt. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 07:00 og 16:00, en frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45. Þetta er kunnuglegt stef á Facebook-síðu Herjólfs síðustu daga, vikur og mánuði, en nú er von um betri tíð með blóm í haga. Rétt í þessu var […]
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Markmiðið er að veita lesendum innsýn í fólkið á bak við listana og þau málefni sem þau telja brýnust. Nafn: Erlingur Guðbjörnsson. Aldur: 53 ára. Fjölskylda: […]
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu

Eyjakonan og leikmaður ÍBV, Sandra Erlingsdóttir, náði stórum áfanga með íslenska landsliðinu í handbolta, í leiknum gegn Færeyjum síðastliðinn miðvikudag, í undankeppni EM 2026. Hún varð sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk fyrir íslenska landsliðið en hún skoraði sjö mörk í tapleiknum gegn Færeyjum, sex þeirra komu af vítapunktinum. Hún hefur nú skorað […]
Með fullfermi eftir örstutta túra

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir fullfermi í Þorlákshöfn í gærmorgun. Um mjög stuttar veiðiferðir var að ræða en þær tóku einungis um 30 tíma höfn í höfn. Veitt var á Selvogsbanka, nánar tiltekið vestan við Surt og sunnan við svonefnda Klöpp. Aflinn var langmest þorskur, stór og fallegur vertíðarfiskur. Skipstjórarnir, Ragnar Waage […]
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór bætist í hóp þeirra sem fram kemur á Þjóðhátíðinni í ár. Friðrik Dór hefur lengi verið einn af vinsælustu popptónlistarmönnum landsins. Hann hefur áður komið fram á Þjóðhátíð og þekkir því vel til. Friðrik og Jón bróðir hans eiga einmitt Þjóðhátíðarlagið frá 2018 ,,Á sama tíma á sama stað” Undirbúningur fyrir hátíðina […]