Rúta lenti í vandræðum á nýja hrauninu
Hópferðabifreið lenti í vandræðum á nýja hrauninu þegar hópur var á leið að skoða nýtt listaverk Ólafs Elíassonar. Vinnuvélar voru kallaðar til aðstoðar eftir að rútan grófst niður í jarðveginn. Ljósmyndir/aðsendar.

Hópferðabifreið lenti í vandræðum á nýja hrauninu í dag þegar hópur var á leið að skoða nýtt listaverk eftir Ólaf Elíasson á svæðinu.

Að sögn sjónarvotta var verið að aðstoða við að koma rútunni til baka þegar hún grófst niður í jarðveginn. Litlu hafi munað að bifreiðin færi út af veginum við þessar aðstæður.

Samkvæmt upplýsingum sem Eyjafréttir hafa fengið er vegurinn á svæðinu ekki gerður fyrir þungaflutninga eða stórar hópferðabifreiðar og virðist jarðvegurinn hafa gefið eftir undan þunga rútunnar.

Á myndum sem Eyjafréttir fengu sendar sést hvernig vinnuvélar voru kallaðar til aðstoðar við að koma rútunni úr sjálfheldunni. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki.

Nýjustu fréttir

Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.