Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Vestmannaeyjabær segir engar formlegar kvartanir hafa borist um starfsumhverfi eða samskipti stjórnenda og starfsfólks og vísar til aukinnar starfsánægju samkvæmt mannauðskönnunum
Ráðhús_nær_IMG_5046
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafa svarað fyrirspurn Eyjafrétta í kjölfar opinbers pistils fyrrverandi starfsmanns þar sem sett var fram gagnrýni á starfsumhverfi og stjórnarhætti hjá bænum.

Í svari bæjarins segir að engar formlegar kvartanir eða ábendingar hafi borist á undanförnum árum sem varði starfsumhverfi eða samskipti stjórnenda og starfsfólks. „Hjá Vestmannaeyjabæ starfa rúmlega 500 starfsmenn við 18 stofnanir. Ef fyrirspurn Eyjafrétta á eingöngu við Ráðhús að þá hafa engar formlegar kvartanir eða ábendingar borist síðustu ár,“ segir í svarinu.

Sjá fyrri umfjöllun: Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ

Þá segir jafnframt að meðferð mannauðsmála fari fram með margvíslegum hætti. Bent er á í svarinu að til staðar sé mannauðsstefna, innri starfsmannavefur með verklagsreglum og samskiptasáttmáli sem unnið sé eftir á bæjarskrifstofum. Einnig segir að reglulega séu framkvæmdar mannauðskannanir og að niðurstöður þeirra sýni aukna starfsánægju.

„Reglulega eru gerðar mannauðskannanir, nú síðast í mars, og sýna niðurstöður að starfsánægja hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár. Regluleg starfsmannaviðtöl styðja þær niðurstöður,“ segir í svari bæjarins. Að endingu er tekið fram í svari bæjaryfirvalda að hvorki sé hægt að tjá sig um einstök starfsmannamál né umræðu á samfélagsmiðlum.

Nýjustu fréttir

Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
ÍBV vann sex marka sigur á Þór
ÍBV tapaði naumlega gegn Grindavík/Njarðvík
ÍBV vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH
Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.