Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Fyrrverandi starfsmaður setur fram harða gagnrýni í opinberum pistli á samfélagsmiðlum og fleiri hafa tekið undir í umræðunni :: Eyjafréttir hafa óskað eftir viðbrögðum frá Vestmannaeyjabæ
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Opinber færsla Lindu Rósar Sigurðardóttur á samfélagsmiðlum hefur vakið athygli þar sem hún lýsir reynslu sinni af störfum hjá Vestmannaeyjabæ og setur fram gagnrýni á starfsumhverfi og stjórnarhætti innan bæjarkerfisins.

Linda Rós starfaði um árabil hjá Vestmannaeyjabæ, fyrst í Íþróttamiðstöðinni og síðar á umhverfis- og framkvæmdasviði. Í pistli sínum lýsir hún breytingum sem hún segir hafa orðið á starfsumhverfinu á síðari árum og segir meðal annars að starfsfólk hafi upplifað að erfitt væri að tjá skoðanir sínar án afleiðinga.

Umræða fór af stað í kjölfar pistilsins

Pistillinn hefur vakið talsverð viðbrögð og í umræðunni í kjölfarið hafa aðrir einstaklingar, þar á meðal fyrrverandi starfsmenn bæjarins, tekið undir gagnrýni á vinnulag og starfsumhverfi. Eyjafréttir hafa óskað eftir viðbrögðum frá Vestmannaeyjabæ vegna þeirra sjónarmiða og fullyrðinga sem fram hafa komið. Nanar verður fjallað um málið þegar svör berast.

Nýjustu fréttir

ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Nýr hópur, nýjar áskoranir og mikil tilhlökkun hjá ÍBV
Systkinaafsláttur nær nú einnig til skráningardaga
Tvö karlalið ÍBV í eldlínunni í dag
Skilaboð til ríkisstjórnar Kristrúnar?
Kristrún framlengir við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.