Sumarlestur Bókasafns Vestmannaeyja hefst formlega laugardaginn 30. maí klukkan 12:00 og eru öll börn hvött til að taka þátt í sumar.
Í ár er þema sumarlestursins tengt kappakstri og hefur bókasafnið verið skreytt í takt við það. Skráning fer fram í afgreiðslu bókasafnsins, en einnig verður hægt að skrá sig til leiks allt sumarið.
Börn í 1.-4. bekk fá afhentan lestrarhest í skólunum, en einnig verður hægt að nálgast lestrarhesta á bókasafninu. Sumarlesturinn er opinn börnum á öllum aldri og markmiðið er að hvetja börn til lesturs yfir sumarmánuðina og efla lestrargleði þeirra.
Bókasafnið hvetur fjölskyldur til að mæta á opnunina á laugardag og taka þátt í sumarlestrinum.