Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Eivind Grøv. Ljósmynd/aðsend.

Eyjagöng ehf. hefur gert samstarfssamning við prófessor Eivind Grøv, einn fremsta sérfræðing heims á sviði neðansjávargangagerðar. Grøv mun gegna hlutverki tæknilegs ráðgjafa félagsins við undirbúning og hönnun fyrirhugaðra neðansjávarganga milli meginlands Íslands og Heimaeyjar. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu.

Eivind Grøv er aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknarstofnuninni SINTEF og aðjúnkt við NTNU-háskólann í Þrándheimi. Hann hefur yfir 40 ára reynslu af jarðgangagerð og bergverkfræði. Hann hefur meðal annars gegnt formennsku í Norska jarðgangafélaginu (NFF) auk þess að hafa verið varaformaður Alþjóðajarðgangasamtakanna (ITA-AITES).

Grøv á að baki farsælt samstarf við íslenska aðila til margra ára. Hann var tæknilegur ráðgjafi Spalar hf. við hönnun og framkvæmd Hvalfjarðarganga á tíunda áratugnum. Þá var hann kallaður til sem óháður sérfræðingur í deilunefnd vegna Vaðlaheiðar- og Norðfjarðarganga þegar þau verkefni stóðu frammi fyrir krefjandi jarðfræðilegum áskorunum. Í Færeyjum hefur hann verið ráðgjafi við gerð allra fjögurra neðansjávarganga sem þar hafa verið lögð og er nú ráðgjafi verkkaupa vegna Suðureyjarganganna, sem verða um 24,3 kílómetrar að lengd.

„Við erum afar ánægð með að hafa tryggt okkur krafta Eivinds Grøv. Reynsla hans af neðansjávargangagerð er einstök á heimsvísu og þekking hans á framkvæmd mannvirkja sem þessara gerir hann að tilvöldum ráðgjafa fyrir Eyjagöng“ segir Haraldur Pálsson hjá Eyjagöngum ehf.

Grøv mun starfa sem tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga ehf. og veita umsagnir um hönnun, rannsóknir og önnur tæknileg atriði sem verkfræðistofur á vegum félagsins leggja fram, segir að endingu í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.