Leikmenn á förum frá ÍBV
Hákon Daði Styrmisson mun leika með Aftureldingu á næstu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Handboltamennirnir Andrés Marel Sigurðsson, Egill Oddgeir Stefánsson og Hákon Daði Styrmisson eru allir á förum frá ÍBV. Þá hefur Nökkvi Snær Óðinsson lagt skóna á hilluna. Félagið greindi frá brotthvarfi leikmannanna á samfélagsmiðlum sínum. 

Andrés Marel hefur ákveðið að færa sig yfir á nýjan vettvang þar sem hann mun hefja nám í bænum eftir sumarið og verður því ekki með liðinu á komandi tímabili. 

Egill Oddgeir Stefánsson flytur einnig frá Eyjum eftir sumarið til að hefja nám. Hann hefur skrifað undir samning við Gróttu sem leikur í Grill 66 deildinni og mun leika með þeim næstu tvö árin. Egill lék með HBH í vetur þar sem hann skoraði 88 mörk ásamt því að leika með ÍBV.

Hákon Daði Styrmisson kom til ÍBV eftir áramót, eftir að hafa verið í atvinnumennsku. Hann hefur nú samið við Aftureldingu um að leika með liðinu næstu þrjú árin í Olís deild karla. 

Nökkvi Snær Óðinsson hefur svo ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril með ÍBV. Í tilkynningu ÍBV segir: ,,í gegnum árin hefur hann verið dýrmætur hluti af félaginu og lagt sitt af mörkum með dugnaði, metnaði og góðum karakter. Einnig var Nökkvi lykilmaður hjá okkur í Íslandsmeistaratitli 2023. Framlag hans til félagsins verður seint fullþakkað.”

Á facebook-síðu félagsins þakkar ÍBV þeim öllum fyrir þeirra framlag til félagsins og óskar þeim leikmönnum sem sigla nú á önnur mið velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Nýjustu fréttir

Leikmenn á förum frá ÍBV
Rúta lenti í vandræðum á nýja hrauninu
Ræsa lestrarvélarnar á laugardag
Leikfélagið með spunasýningu
Milena í eldlínunni með U16 ára landsliðinu
„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.