Bónus opnaði verslun sína í Vestmannaeyjum núna í morgun. Margir mættu strax kl. 10 og versluðu vel í versluninni. Grímur kokkur var með kynningu á bollum frá Grím kokk, vel til fundið hjá honum rétt fyrir bolludaginn. ÍBV og Bónus skrifuðu undir samstarfssamning þegar verslunin hafði opnað.
Fyrsti viðskiptavinur Bónus í Vestmannaeyjum, var Lilja Sigríður Steingrímsdóttir og Kristján Egilsson kom í humátt á eftir henni og var viðskiptamaður no. tvö.
Gestum var boðið upp á tertur sem Arnór bakari bakaði og kókó mjólk með.