Breytt fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa í grunnskólum
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur, að fenginni tillögu frá Menntamálastofnun, ákveðið að breyta fyrirkomulagi lögbundinna samræmdra könnunarprófa í grunnskólum. Breytingin er tvenns konar. �?ll samræmd könnunarpróf verði lögð fyrir með rafrænum hætti frá og með haustinu 2016. Samræmd könnunarpróf sem undanfarin ár hafa verið haldin að hausti í 10. bekk færist til vors í 9. bekk. �?ví verður ekkert próf haldið í 10. bekk haustið 2016 en þeir sem verða í 10. bekk á næsta skólaári munu þreyta próf vorið 2017 á sama tíma 9. bekkingar.
Með því að gera prófin rafræn gefst kostur á fjölbreyttari leiðum við að prófa markmið skólastarfs, stytta vinnslutíma miðlægra prófa, bjóða upp á sveigjanleika í fyrirlögn, auðvelda stuðningsúrræði fyrir nemendur með sérþarfir og gefa kost á að laga próffyrirlögn að hæfni nemenda. Með því að færa 10. bekkjar könnunarprófið í 9. bekk gefst nemendum, forráðamönnum þeirra og kennurum meira svigrúm til þess að nýta sér niðurstöðurnar til að bregðast við og móta áherslur í námi í 10. bekk.
Jafnframt þessum breytingum gerir Menntamálastofnun könnunarprófin hæfnimiðaðri í takt við áherslur í aðalnámskrá grunnskóla frá 2013. Miðað er við að áfram verði tvö könnunarpróf í 4. og 7. bekk, þ.e. í íslensku og stærðfræði. Í 10. bekk verður metin hæfni í íslensku, stærðfræði og ensku.
Menntamálastofnun mun á næstunni kynna betur breytt fyrirkomulag lögbundinna samræmdra könnunarprófa og gefa út dagsetningar á fyrirlögn þeirra á næsta skólaári.
Samkvæmt ákvæðum í almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla er foreldrum heimilt að óska eftir því að barn þeirra sé útskrifað úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið. Í aðalnámskránni eru sett viðmið um verklag og forsendur við mat á slíkum óskum. Með því að færa samræmt könnunarpróf til vorannar í 9. bekk fá foreldrar, nemendur og skólar viðbótarupplýsingar til að meta hvort viðkomandi nemandi búi yfir nægilegri hæfni og geti því innritast í framhaldsskóla.

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.