Dagskrá Landakirkju yfir hátíðirnar
Landakirkja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í dag er aðfangadagur og hefst jóladagskrá Landakirkju með helgistund verður í kirkjugarðinum í dag klukkan 14.00. Hér að neðan má sjá dagskrá Landakirkju allt fram að þrettánda.

Aðfangadagur: Helgistund verður í kirkjugarðinum samkvæmt venju og lítur út fyrir að það muni blása heldur byrlega í ár. Það er ávallt gaman að sjá hversu margir vitja leiða ástvina sinna á aðfangadag enda leitar hugurinn gjarnan til þeirra sem ekki eru lengur meðal okkar. Klukkan 18 verða jólin hringd inn og jólafögnuðurinn byrjar. Sú nýbreytni verður í ár að streymt verður frá aftansöngnum. Miðnæturmessa er síðan kl. 23:30 þar sem um sannkallaða jólaandakt er að ræða.

Jóladagur: Það verða varla jól í Landakirkju án þess að Lúðrasveit Vestmannaeyja bregði á leik. Kl. 13:30 byrjar lúðrasveitin að spila og síðan hefst hátíðarmessan kl. 14:00.

Annar í jólum: Hátíðarmessa verður haldin á Hraunbúðum kl. 14 þar sem Kitty og kór Landakirkju syngja hátíðarsöngvana og jólasálmana.

Þriðji í jólum: Engin eru jól án jólaballs og jólaball Kvenfélags Landakirkju verður haldið á þriðja í jólum kl. 16. Dansað í kringum jólatréð við undirleik húsbandsins og kvenfélagið reiðir fram kruðerí og heitt súkkulaði.

Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18 þar sem gamla árið er kvatt og því þakkað og minnst í gleði og þakklæti jafnt sem sorg og eftirsjá.

Nýársdagur: Nýja árinu er heilsað kl. 13 þar sem framtíðina og hið óráðna er lagt í Guðs hendur.

4. janúar: Þrettándaguðsþjónustan verður haldin í Stafkirkjunni samkvæmt venju þar sem Tríó Þóris Ólafssonar sér um tónlistarflutning.

Við hlökkum til að sjá ykkur í kirkjunni yfir jól og áramót. Gleðjumst saman yfir fæðingu frelsarans og fögnum ljósi ljósanna. Sjáumst í kirkjunni okkar, segir í tilkynningu frá kirkjunni.

Nýjustu fréttir

Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.