Héraðsmót drengja og stúlkna í blaki fyrir keppendur 16 ára og yngri voru haldin á Hvolsvelli 14. mars sl.
Til leiks mættu lið frá Dímon og Hamri og unnu Dímonkeppendur bikarinn í báðum flokkum. Sigur Dímonar í drengjflokki er sá 10. frá upphafi og er liðið nú orðið sigursælasta liðið í sögu keppninnar, en fyrsta mótið var haldið árið 1980. Hrunamenn menn koma næstir með níu titla.