Djúpið - raunsæ og erfið áhorfs
Það var á köflum erfitt að sitja yfir myndinni Djúpið sem var frumsýnd á sunnudaginn í Háskólabíói. Sérstaklega var atriðið þegar báturinn í mynd­inni, Breki VE, festir veiðarfærin í sjávarbotni og að lokum sekkur. Kuldinn nísti inn að beini þegar skipverjarnir lenda í sjónum og sorgin, þegar þeir farast hver á fætur öðrum, var áþreifanleg í salnum. Ungur maður sat við hliðina á mér á frumsýningunni og átti verulega erfitt með að horfa á atriðið. Algjör dauðaþögn var í salnum nema hvað áhorfendur tóku reglulega andköf. Aldrei áður hef ég upplifað önnur eins viðbrögð við atriði í bíómynd og þetta sunnudagskvöld þegar Djúpið var frumsýnt að við­stöddum ríflega eitt þúsund áhorfendum.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.