Dóra Björk ráðin hafnarstjóri
17. mars, 2021

Geirlaug Jóhannsdóttir frá Hagvangi mætti á fjarfundi  á fund framkvæmda og hafnarráðs sem fram fór í gær. Þar greindi hún frá niðurstöðum á mati á umsækjendum um stöðu hafnarstjóra en 5 umsóknir bárust en umsækjendur voru: Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Dóra Björk Gunnarsdóttir, Guðni Grímsson, Sigurður Ingason, Sindri Ólafsson.
Fór Geirlaug ítarlega yfir ráðningarferlið og þá þætti sem lagðir voru til grundvallar.

Eftirfarandi kemur fram í niðurstöðu ráðsins. “Við Ráðningu í starf Hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar höfum við gætt þess vel að viðhalda faglegu ráðningaferli og fólum því starfsmannasviði Vestmannaeyja að leiða þá vinnu, ásamt því naut starfsmannasviðið aðstoðar Geirlaugar Jóhannsdóttur sérfræðings í mannauðsmálum frá Hagvangi. Við viljum þakka fyrir sýndan áhuga og þær góðu umsóknir sem bárust í starfið. Einnig viljum við þakka starfsmannasviði Vestmannaeyjabæjar og Geirlaugu Jóhannsdóttur fyrir vel unnin störf og góða vinnu, sem nýttist okkur við ákvörðunartökuna.”

Ráðið samþykkti að Dóra Björk Gunnarsdóttir verði ráðinn í starf hafnarstjóra og var það samþykkt með 3 atkvæðum en 2 fulltrúar sátu hjá.

Dóra hefur lokið háskólamenntun sem grunnskólakennari og stundar nú meistaranám við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst auk þess sem hún leggur stund á nám við grunndeild rafiðnaðar við framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Dóra Björk starfar í dag sem stundakennari í Visku símenntunarmiðstöð og kennir m.a. upplýsingatækni. Dóra Björk var framkvæmdastjóri ÍBV á árunum 2013-2019 og öðlaðist þar umtalsverða stjórnunar- og rekstrarreynslu. Sem framkvæmdastjóri félagsins vann Dóra Björk að því að endurnýja nær alla verkferla félagsins og undir hennar stjórn varð umsnúningur á fjárhag félagsins.

Dóra Björk var formaður Þjóðhátíðanefndar og reyndi þá á styrkra stjórnun, skipulagningu,
frumkvæði og samskipti við fjölda hagsmunaðila. Áður starfaði Dóra Björk til fjölda ára sem
grunnskólakennari, fagstjóri og verkefnastjóri við Grunnskóla Vestmannaeyja. Að auki sat
Dóra Björk í stjórn Herjólfs ohf um tíma.

Gera athugasemdir hvernig staðið er að ráðningunni
Fulltrúar D-lista sendu frá sér langa bókun þar sem gerðar eru athugasemdir við vinnulag vegna ráðningar á hafnarstjóra. “Samkvæmt 4. gr. reglugerðar 1013 frá 2012 hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn er það á sviði hafnarstjórnar að skipa hafnarstjóra. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í framkvæmda- og hafnarráði gera athugasemd við hvernig staðið hefur verið að ráðningunni. Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa ráðningaskrifstofunnar Hagvangs voru viðtöl tekin við alla fimm umsækjendur um starf hafnarstjóra. Síðar voru tekin framhaldsviðtöl við tvo umsækjendur sem nú liggur fyrir að hafnarstjórn á að velja á milli.

Umsóknarfrestur rann út fyrir um mánuði síðan og á þeim tíma sem málið hefur verið í vinnslu hjá ráðningaskrifstofu og bæjarskrifstofu hefur aldrei verið leitað til hafnarstjórnar eða þeim kynnt þau gögn sem umsækjendur lögðu fram.

Upplýsingar byggðar á huglægu mati
Hafnarstjórn er því bundin við þær upplýsingar sem ráðningaskrifstofan leggur hér fram sem að hluta til eru byggðar á huglægu mati. Ekki er með þessu verið að setja út á vinnu ráðningaskrifstofunnar eða umrædd starfsmanns heldur gerð athugasemd við vinnufyrirkomulagið.

Venjubundið er þegar ráðið er í störf á vegum Vestmannaeyjabæjar að bæjarskrifstofa eða hlutaðeigandi svið bæjarins sér um þá ráðningu, bæði viðtöl og tilfallandi vinnu ráðningaskrifstofu. Í þessu tilviki er það lögbundið að hafnarstjórn ber ábyrgð á ráðningu í stöðu hafnarstjóra og því hefði verið eðlilegt að ráðið hefði komið að ráðningunni frá upphafi. Með því að takmarka þau gögn sem lögð eru fram er framkvæmda- og hafnarráð að treysta embættismönnum fyrir ákvörðun sem er í raun á ábyrgð ráðsins. Slíkt er ekki til þess fallið að taka upplýsta ákvörðun í málinu.

Drögum að auglýsingu breytt
Eins gera fulltrúar minnihlutans athugasemd við hvernig mat fór fram. Eðlilegt verður að teljast að framkvæmda- og hafnarráð hefði haft yfirumsjón ásamt fulltrúa Hagvangs að leggja mat á helstu atriði sem bæri að horfa til við mat á umsækjendum. Þá er gerð athugasemd við það að drög að auglýsingu var breytt í meðferð bæjaryfirvalda frá minnisblaði sem samþykkt var í framkvæmda- og hafnarráði og bæjarstjórn.

Fulltrúar minnihlutans telja að hafnarráð þurfi að kynna sér gögn málsins betur áður en ákvörðun er tekin þar sem mat Hagvangs var að koma fyrir augu ráðsmanna í fyrsta skipti á þessum fundi.

Gagnrýni skýtur skökku við
Fulltrúar E- og H-lista svöruðu þessum athugasemdum með bókun. “Við lítum svo á að þar sem engin gagnrýni hefur áður komið fram á ráðningarferlið, þá teljum við að okkur hafi tekist vel til með ferlið og því skýtur það skökku við að nú komi fram gagnrýni á ráðningarferlið.”

Upplýsingar fyrst birtar á fundinum
Fulltrúar D-lista bókuðu þá. “Fulltrúar minnihlutans ítreka fyrri bókun og benda á að ekki er hægt að gagnrýna hluta af ferli áður en það kemur fyrir augu ráðsins. Skipting á mikilvægi hvers hlutar var að koma fram í fyrsta skipti á þessum fundi og það er byggt á mati aðila sem koma ekki að ákvörðunartöku við starfið.”

Rökstuðningur fyrir ráðningu í starf hafnarstjóra.pdf

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst