Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari
Sveitin með Íslandsmeistartitilinn. Ljósmyndir/aðsendar.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Taflfélag Vestmannaeyja varð í dag Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Titillinn kemur á einstaklega skemmtilegum tíma því félagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári.

Eyjamenn fóru inn í lokaumferðina í harðri baráttu um efsta sætið eftir dramatískan sigur kvöldið áður. Í dag tókst liðinu síðan að landa sigrinum sem þurfti til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn eftir spennandi keppni við sterkustu skáklið landsins. Eyjamenn byrjuðu ekki vel í dag. Þeir töpuðu tveimur fyrstu skákunum, en sveitin kom sterk til baka og náði að landa sætum sigri.

Sveit Taflfélags Vestmannaeyja var skipuð þeim Jaime Santos Latasa, Abhijeet Gupta, Jóhanni Hjartarsyni, Helga Ólafssyni, Simon K. Williams, Birni Þorfinnssyni, Erni Leó Jóhannssyni og Guðmundi Gíslasyni. Liðsstjóri var Þorsteinn Þorsteinsson, en þess má geta að hann tefldi einnig með sveitinni. Þess má geta að fleiri skákmenn hafa leikið með sveitinni í vetur, en spilaðar eru 10 umferðir.

Árangurinn er stór áfangi fyrir Taflfélag Vestmannaeyja sem hefur ekki áður náð að vinna þennan titil. Að vinna Íslandsmeistaratitilinn á sama ári og félagið fagnar aldarafmæli sínu er því sannkölluð afmælisgjöf til félagsins og skáklífsins í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir óskar sveitinni og forsvarsmönnum félagsins innilega til hamingju með titilinn.

Sigursveitin ásamt stjórnarmönnum og velunnurum TV.

 

Helgi Ólafsson, Arnar Sigurmundsson, stjórnarmaður TV og Jóhann Hjartarson.

 

Björn Þorfinnsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Guðmundur Gíslason. Myndir/aðsendar.

 

Þorsteinn og Helgi voru kátir þegar úrslitin voru ljós í dag.

Nýjustu fréttir

Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.