ÍBV tekur þátt í undankeppni Evrópudeildarinnar þriðja árið í röð en Eyjamenn eru í neðri styrkleikaflokki þegar dregið verður í höfuðstöðvum Evrópska knattspyrnusambandsins í Nyon. Í fyrstu umferð er liðum skipt eftir landsvæðum og því getur ÍBV ekki dregist gegn liðum í austur eða suður Evrópu. Sterkasti hugsanlegi mótherjinn er norska úrvalsdeildarliðið Rosenborg en þar má einnig finna írska liðið St. Patricks, sem slegið hefur ÍBV úr keppni síðustu tvö ár. Listi yfir hugsanlega mótherja ÍBV má sjá hér að neðan.