Ólíklegt er að hægt verði að ráðast í dýpkun í Landeyjahöfn á næstu dögum vegna óhagstæðrar veðurspár og mikilla lægða sem ganga nú yfir landið.
Þetta segir Sólveig Gísladóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar. Hún bendir á að skilyrði fyrir dýpkun séu að ölduhæð megi ekki fara yfir 1,5 metra og þurfa slík skilyrði að haldast í nokkra daga samfellt. Samkvæmt ölduspá næstu tíu daga er útlitið dökkt. Ekki er gert ráð fyrir að veður gefi færi á dýpkun á næstunni.
Vegagerðin mun þó fylgjast grannt með þróun mála. Ef veður glæðist verður dýpkunarskipið klárt í verkefnið, en viðgerð á því lauk þann 11. mars. Gert er ráð fyrir að tvo til þrjá góða daga þurfi til að dýpka höfnina nægilega svo hægt verði að hefja siglingar þangað á nýjan leik.
Áfram verður fylgst með ölduspá dag frá degi, en hana má nálgast á vefnum sjolag.is.

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.