Árlegt lundaball bjargveiðimanna er framundan, það verður haldið í Höllinni 28. september. Veiðifélögin í úteyjunum skiptast á að standa fyrir lundaballinu og þá sjöunda hvert ár, hver eyja. Alltaf er mikið lagt í skemmtidagskrána og undirbúningur oft ærinn. Það er metnaður hverrar eyju að toppa síðasta lundaball. Þeir félagar Erpur Snær Hansen og Marínó Sigursteinsson hafa verið og eru duglegir við að rannsaka lundaholurnar með þar til gerðri myndavél, – hvort pysjan væri í góðu yfirlæti í holunum eður ei. Meðfylgjandi myndband gerir góðlátlegt grín af þeim félögum við þessa iðju sína. Myndbandið var sýnt á lundaballi Ystaklettinga árið 2010.