Einar Kristinn Helgason - Málamyndagjörningur?
�?að hefur ekki farið fram hjá neinum undanfarna daga að stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir, Vinstri græn, Framsóknarflokkurinn, Píratar og Samfylkingin hafa átt í stjórnarmyndunarviðræðum undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. �?líkt því sem gerðist í fyrra voru flokkarnir ekki búnir að útiloka samstarf við hvern annan fyrirfram, alla vega ekki opinberlega, og andrúmsloftið einhvern veginn allt annað og léttara.
Lengi vel virtist sem viðræðurnar væru í góðum farvegi milli flokkanna fjögurra, leiðtogar nokkuð bjartsýnir á að hægt væri að ná málamiðlunum í stóru málunum svokölluðu og allir tilbúnir að gefa eitthvað eftir til þess að láta þetta ganga upp.
Á mánudaginn var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn, viðræðurnar sem höfðu staðið yfir í fjóra daga sigldu í strand. Vonbrigðin leyndu sér ekki, a.m.k. ekki meðal þeirra aðila sem komu að viðræðunum. Í viðtölum strax í kjölfarið virtust allir forystumenn flokkanna vera sammála um ágæti viðræðnanna en Framsóknarflokknum fannst hins vegar eins manns meirihluti vera of naumur. �?að er vissulega rétt, eins manns meirihluti er naumur meirihluti en lá það ekki fyrir strax í upphafi? Var það ekki augljóst? Hefði ekki verið gráupplagt að bjóða þá öðrum flokki með í viðræðurnar, t.d. Flokki fólksins eða Viðreisn ef það var virkilega einhver áhugi fyrir þessu samstarfi yfir höfuð?
�?að að Framsókn hafi efast um nauman meirihluta og ekki viljað taka inn fimmta flokkinn rennir stoðum undir þá kenningu að viðræðurnar hafi einungis verið málamyndagjörningur eins og sumir vilja meina. Nú þegar reynt hefur verið á vinstri stjórn og það mistekist, þá liggur beinast við að Vinstri græn, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur ræði næst saman, en það myndi vera óskastjórn Framsóknarflokksins samkvæmt kenningunni. �?ví verður allavega ekki neitað að Framsóknarflokkurinn er eins og svo oft áður í lykilstöðu en hvort að VG sætti sig við þessa þriggja flokka lendingu er erfitt að segja. �?að væri kannski skásti kosturinn í stöðunni úr því sem komið er. Hvort það skili hinum margrædda pólitíska stöðugleika sem hefur verið ákall eftir verður bara að koma í ljós.

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.