Góðan dag kæru vinir. Gleymið ekki smáfuglunum! Þetta heyrum við oft en erum við ekki stundum að gleyma okkar eigin smáfuglum (börnunum okkar)? Mig langar svo að vekja fólk til umhugsunar um einelti, eftir nokkur atvik sem strákurinn minn (barnabarn) lenti í. Hann varð meðal annars fyrir því að tveir strákar tóku úlpuna hans og sögðust hafa pissað á hana, og svo þegar gengið var á þá, þá sögðust þeir nú ekki hafa pissað á fötin hans, en að þetta hafi átt að vera grín.