Karlakór Vestmannaeyja hélt sína árlegu vortónleika í Eldheimum á föstudagskvöld. Gestir tónleikanna að þessu sinni voru Karlakór Hveragerðis. Vel var mætt og góð stemning í salnum.
„Tónleikarnir heppnuðust einstaklega vel og fóru tónleikagestir glaðir og ánægðir heim sem er aðalatriðið. Ég er mjög stoltur af strákunum mínum sem stóðu sig með stakri prýði. Karlakór Hveragerðis voru flottir og skemmtilegir og gaman að lagavalið hjá þeim féll svona vel að efnisskránni okkar. Ekki má gleyma henni Kitty, sem er stórkostlegur tónlistarmaður, sem bar okkur uppi og gerði tónleikana að því sem þeir voru,” segir Matthías Harðarson stjórnandi Karlakórs Vestmannaeyja.
Spurður um hvað sé framundan hjá Karlakórnum segir hann að það séu fastir liðir. „Við syngjum alltaf á Sjómannadaginn bæði við messuna og á Stakkó. Einnig höfum við sungið á fimmtudeginum þar á undan á Brothers. Þá er áætlað í nóvember að syngja sálumessu í Landakirkju sem verður mjög skemmtileg áskorun,” segir Matthías og vill að lokum þakka öllum sem styrktu tónleikana með einum eða öðrum hætti. „Síðast en ekki síst þakka ég öllum sem komu og hlustuðu því án þeirra væri engin ástæða til að halda tónleika.”
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst