Ekkert að gerast í máli Ægis Guðna
5. október, 2018
Ragnheiður og Ægir Guðni

Ragnheiður Sveinþórsdóttir og eiginmaður hennar fæddu soninn Ægir Guðna fyrir átta árum síðan, hann fæddist með klofinn góm en heila vör. Af því að Ægir Guðni er með heila vör þá gengur hann og hans fjölskylda ekki að sama borði hvað varðar sjúkratryggingar. Ragnheiður tók málið í sínar hendur núna í september og sendi erindi á alla þingmenn þessa lands og einnig á alla fjölmiðla. Hlutirnir gengu hratt fyrir sig og margir sýndu þessu áhuga, fjölmiðlar sem og alþingismenn. Til að gera langa sögu stutta skilaði öll vinnan hennar Ragnheiðar sér og tók Svandís Svavarsdóttir heilbrigisráðherra vel í breytinguna á þessu þegar þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason setta fram fyrirspurn, enda ekki annað hægt svo mikið er óréttlætið. Nú eru hins vegar liðnar tvær vikur og lítið gerst og fátt um svör.

Ægir Guðni hefur eytt ófáum stundum í tannlæknastólnum

„Þegar málið hans Ægis Guðna vakti athygli í þjóðfélaginu fögnuðum við þeim orðum heilbrigðisráðherra að hennar vilji væri til að leiðrétta þá mismunun sem börn með klofinn góm en heila vör verða fyrir, þetta væri óeðlilegt fyrirkomulag og að þetta þyrfti að laga. Hún sagði á þingfundi að hún óskaði eftir að undirbúningur færi í gang við mögulega breytingu á reglugerðinni sem þessi börn eiga að falla undir. Þessar rúmu tvær vikur sem liðnar eru hefur verið fátt um svör frá ráðuneytinu og sá sérfræðingur sem hafði umsjón með okkar máli er hættur,” segir Ragnheiður í nýrri færslu á Facebook síðu sinni um stöðu mála.

„Þennan sama dag, stuttu eftir orð ráðherra í þingsal, var þáverandi forstjóri Sjúkratrygginga í útvarpsviðtali þar sem hann tjáði þeim sem hlustuðu að nú væri kominn tími til að endurupptaka mál drengsins í Vestmannaeyjum því fyrri synjun hefði ekki verið endanleg úrlausn og nú væri kominn tími til að fara yfir málið að nýju. Hann talaði líka um ástæðu synjunarinnar og set ég stórt spurningamerki við hvar hann fékk þær upplýsingar, hvort forstjóra Sjúkratrygginga sé einfaldlega heimilt að skoða okkur í gagnagrunni þeirra og hvort hann hafi mátt segja hlustendum frá forsendum synjunarinnar þar sem það hafði ekki komið fram áður?

Aðgerðin sem bíður Ægis Guðna innan nokkura ára. Festingar verða boraðar á höfuðkúpuna til að draga efri kjálkann betur fram

Sama daginn og þessir yfirmenn voru svona jákvæðir fengum við líka slæmar fréttir; það gengur ekki nógu vel að færa efri kjálkann á Ægi Guðna fram þannig og það lítur út fyrir að hann þurfi í aðgerð eftir nokkur ár þar sem festingar verða boraðar á höfuðkúpuna til að draga efri kjálkann betur fram, eins og sjá má á myndinni er þetta töluverð aðgerð þar sem settar verða upp festingar í beinið til að laga fæðingargallann.

Að öllu þessu sögðu vorum við bjartsýn þegar fagnefnd Sjúkratrygginga kom saman í byrjun október og tók málið okkar aftur fyrir. Eftir að ráðherra segir að hennar vilji sé til að leiðrétta þessa mismunun sem hennar undirstofnun endurtekur í sífellu fáum við aftur synjun. Og okkur er boðið að sækja um aftur ef að vandi drengsins vex.

Við erum komin í vítahring. Við foreldrarnir í samráði við sérfræðinga í þessum fæðingargalla ákváðum að hefja nauðsynlega meðferð til að laga bitið, til að minnka líkurnar á slæmri skúffu, lina þjáningar sonar okkar og augljóslega spara ríkinu kostnaðinn við fæðingargalla hans. Það er ljóst að vandi hans er slæmur en afþví að ástandið versnar ekki lengur þá munum við væntanlega aldrei verða samþykkt hjá Sjúkratryggingum. Og það besta er að í fyrra var afgangur af því fjármagni sem ætlað var í tannlækningar barna hjá Sjúkratryggingum og í stað þess að nýta það fjármagn fyrir þessi langveiku börn var því skilað.”

Svarið sem Ragnheiður fékk við umsókn um greiðsluþátttöku
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 7 Tbl 2025
7. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.