Náttúrustofa Suðurlands tekur fram að ekkert samráð var haft við stofuna áður en ákveðið var í Bæjarráði Vestmannaeyja 26. júní síðastliðinn að leyfa lundaveiðar í Vestmannaeyjum í sumar. Samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Suðurlands undanfarin ár hefur viðkoma lundastofnsins í Vestmannaeyjum verið minni en nemur viðhaldi stofnsins og veiðar því ósjálfbærar.