Engin tilboð bárust í endurbætur á pósthúsinu í Vestmannaeyjum sem Ríkiskaup buðu út í byrjun sumars. „Það er mjög sjaldgæft að við bjóðum eitthvað út án þess að það berist nein tilboð. Það er eiginlega einsdæmi, ég man allavega ekki eftir því að þetta hafi áður komið fyrir,“ segir Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafasviðs Ríkiskaupa, í Morgunblaðinu í dag.