Ekki hægt að komast með bíl til Eyja fyrr en síðdegis á föstudag
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum, segir að ekki sé hægt að komast með bíl til Eyja fyrr en síðdegis á föstudag. Ástæðan er sú að Herjólfur er fullbókaður allt til þess tíma. Visir.is greindir frá.
�?etta kemur fram á Facebook-síðu bæjarstjórans nú rétt í þessu en þar greinir hann frá því að hann hafi sent samgönguyfirvöldum og þingmönnum bréf þar sem hann krefst úrbóta; þess að ferðum Herjólfs sé fjölgað.
�??�?g verð að trúa því að þeir sem eru ábyrgir bregðist nú við,�?? segir Elliði sem er ánægður með það hversu margir vilja heimsækja Vestmannaeyjar. En, það verði einfaldlega að bæta við ferðum, jafnvel næturferðum ef þeirra er þörf, þegar álagið er sem mest. �?að hljóti að vera hægt að bregðast við því erindi án þess að til komi �??hávaði�?? úr Eyjum.
Elliði hefur lengi barist fyrir bættum samgöngum til Eyja. Í erindi hans nú kemur fram að í Vestmannaeyjum búi 4300 manns og ýmislegt óvænt geti gerst sem kallar á að komast þurfi heiman og heim með litlum fyrirvara. Og óöryggið sem því fylgir að teppast heilu og hálfu dagana sé mikið. �??Að komast ekkert í heila vinnuviku er algerlega óviðunandi,�?? segir í bréfi Elliða sem meðal annars er sent til Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra.
�??Í reynd vil ég trúa því að nú þegar sé búið að taka ákvörðun um að fjölga ferðum þannig að alla daga þessa viku sigli ferjan 7 til 8 ferðir á dag.�??

Nýjustu fréttir

Útgáfutónleikar Vina og vandamanna: Eyjalögin lifa áfram
Sjolag.is í stað veður- og ölduspár á netinu
ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.