Samráðshópur Hafrannsóknastofnunar og útgerða uppsjávarskipa hittist á fundi í vikulokin þar sem m.a. verður rætt um framhald loðnumælinga í janúar, greinir mbl.is frá.
Heimaey VE lauk sínum leiðangri á sunnudag, en ekki varð vart við loðnu fyrir norðaustan land, en í vikulöngum túr í samvinnu Hafrannsóknastofnunar og útgerða uppsjávarskipa var áhersla lögð á að kanna svæðið austan við Kolbeinseyjarhrygg. Að því loknu var var farið vestur með landgrunnskantinum, en síðan í haust hafa fregnir borist af loðnu á Vestfjarðamiðum. Í umfjöllun um leiðangurinn í Morgunblaðinu í dag segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, að það sé hefðbundið að loðna sé á því svæði á þessum árstíma. Þarna hafi verið eldri og yngri loðna í bland og verið sé að vinna úr gögnum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.