„Þetta er nú ekki alveg eins einfalt og formaður fulltrúaráðsins virðist telja, þótt efalaust búi góður vilji að baki,“ sagði Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar og oddviti H – listans, þegar hann var spurður út í þá skoðun Gríms Gíslasonar, formanns fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum, sem kom fram hér í Eyjafréttum í gær, að prófkjör gæti væri leið til að sameina Sjálfstæðisflokkinn á ný.
„Ég veit ekki betur en að öllu því fólki sem tók sæti á framboðslista Fyrir Heimaey hafi verið vísað úr Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum og strikað út af félagaskrá. Þegar af þeirri ástæðu getur enginn úr þessum hópi tekið þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Eyjum að óbreyttu.“
Hefur verið tekin ákvörðun um hvort Fyrir Heimaey bjóði fram lista í kosningunum í maí?
„Nei, það hefur engin ákvörðun verið tekin í þeim efnum ennþá. Fyrir Heimaey er bæjarmálafélag en ekki stjórnmálaflokkur og það er því sérstök ákvörðun hverju sinni hvort boðið er fram í kosningum – og sú ákvörðun hefur ekki verið tekin,“ sagði Páll Magnússon.