Enn nokkur atriði sem þarf að ljúka fyrir afhendingu
Mynd: Vegagerðin

Verulega styttist í að smíði nýs Herjólfs klárist. Skipasmíðastöðin CRIST S.A. í Gdansk í Póllandi er á lokasprettinum í smíðinni sjálfri en endanlegum frágangi er þó    ekki að fullu lokið. Þá eiga flokkunarfélag skipsins og Samgöngustofa eftir að taka skipið út. Þegar þessu er lokið og brugðist hefur verið við athugasemdum á fullnægjandi hátt er skipið tilbúið. Auk þessara atriða sem tengjast smíðinni  þarf að ganga frá lokauppgjöri milli kaupanda og seljanda áður en til afhendingar kemur.

Flokkunarfélag skipsins, DNV-GL, á enn eftir að taka út mikilvægan öryggisbúnað áður en það getur gefið út nauðsynleg vottorð fyrir skipið. Skoðunarmenn Samgöngustofu eru væntanlegir á miðvikudag til að fara í upphafsskoðun á skipinu. Sú skoðun tekur nokkra daga en það er ekki fyrr en að lokinni þeirri skoðun sem hægt er að gefa út haffærniskírteini Herjólfs. Öðruvísi verður ferjunni því ekki siglt heim. Flokkunarfélag er óháð stjórnvöldum og tekur út hvort skip uppfylli staðla og reglur.

Vegagerðin er í viðræðum CRIST S.A. um uppgjör lokagreiðslu fyrir ferjuna. Lokagreiðsla samanstendur af 15% samningsfjárhæðar auk uppgjörs fyrir umsamin aukaverk að frádregnum samningsbundnum frádrætti vegna tafa á afhendingu og tæknilegra frávika frá smíðalýsingu samkvæmt nánar tilgreindri aðferðarfræði sem tiltekin er í samningi milli aðila. Þessar viðræður eru á viðkvæmu stigi og því er ekki unnt að greina frá innihaldi þeirra að svo stöddu en gert er ráð fyrir að mál skýrist frekar undir lok næstu viku.

Af vef Vegagerðarinnar

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.