Ertu eitthvað að skána
Ung stúlka, nýútskrifuð sem sjúkraþjálfari var í heimsókn hjá vinkonu sinni hér í Vestmannaeyjum í sumar. Vinkonurnar eru báðar áhugasamir golfleikarar og ákváðu að spila nokkrar holur á golfvellinum. �?egar sjúkraþjálfarinn slær af tí-inu, þá geigaði höggið all hressilega. Kúlan stefndi beint á fjóra menn sem voru að spila á næstu flöt
Kúlan lenti í einum mannanna og hann hrundi samstundis niður og veltist um af kvölum, með báðar hendur í klofinu á sér. Konan þusti til mannsins og byrjaði strax felmtri slegin að biðjast afsökunar á þessu slysaskoti.
�??Leyfðu mér að hjálpa þér, ég er sjúkraþjálfari og ég get örugglega minnkað verkinn eitthvað”, sagði hún við manninn.
�??Nei, nei”, segir maðurinn, �??�?g hlýt að jafna mig á nokkrum mínútum”, en áfram lá maðurinn þó á jörðinni í fósturstellingu, með báðar hendurnar í klofinu, greinilega mjög þjáður.
En stúlkan var ákveðin og að lokum leyfði maðurinn henni að hjálpa sér. Hún snéri manninum varlega á bakið og tók svo blíðlega í hendur hans og lagði þær með síðunum. Svo byrjaði hún að losa um beltið á buxunum hans og smeygði annari hendinni inn fyrir buxnastrenginn. Hún þreifaði rólega í kringum kynfæri mannsins og tók svo ofurlétt um punginn og nuddaði hann varlega.
Maðurinn lygndi aftur augunum og stundi.
Eftir dágóða stund spurði hún: �??Hvernig líður þér, ertu eitthvað að skána?
Maðurinn opnaði augun og sagði: �??�?etta er alveg rosalega gott…. en golfkúlan fór í þumalinn og ég held að hann sé brotinn”.

Nýjustu fréttir

Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.