Síðustu 6 mánuðu hefur Eyjablikk í samstarfi við Samtök Iðnaðarins (SI) unnið að innleiðingu gæðakerfis samtakanna við rekstur og stjórnun fyrirtækisins. Vottunin er liður í stefnumótun fyrirtækisins en Eyjablikk hóf að vinna eftir því í ágúst og er unnið eftir sér sniðinni gæðahandbók í dag.