Eyjafréttir munu ekki berast í hús fyrr en á morgun
Vegna samgönguörðugleika munu Eyjafréttir ekki berast til Vestmannaeyja fyrr en með seinni ferð Herjólfs í kvöld (kl. 22:00). Blöðin munu því ekki berast til áskrifenda fyrr en á morgun (fimmtudag) en eins og vanalega geta áskrifendur nálgast blaðið á tölvutækuformi inni á eyjafrettir.is.