Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Landeyjahöfn hefur verið lokuð vegna grynninga undanfarnar vikur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Unnið er að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar á sama tíma og höfnin hefur verið lokuð vikum saman vegna ónægs dýpis. Frá þessu er greint á fréttavefnum Vísi.

Þar segir enn fremur að danska fyrirtækið DHI vinni nú að tillögum í samstarfi við Vegagerðina sem miða að því að bæta ástand hafnarinnar til framtíðar. Niðurstöður eru væntanlegar í vor, en í kjölfarið þurfa stjórnvöld að taka afstöðu til framkvæmda og kostnaðar.

Höfnin ekki verið dýpkuð um tíma

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja nýverið kom fram að ekki hafi verið hægt að ráðast í dýpkun í langan tíma vegna veðuraðstæðna. Bæjarfulltrúar bentu á að staðan undirstriki hversu aðkallandi sé að ljúka uppbyggingu hafnarinnar, enda gegnir hún lykilhlutverki í samgöngum við Vestmannaeyjar.

Nokkrar leiðir til skoðunar

Samkvæmt Vegagerðinni eru nú til skoðunar ýmsar úrbætur. M.a. lenging brimvarnargarða, garðagerð á rifinu utan við höfnina og svokölluð „buffer“-dýpkun til að takast á við sandburð. Markmiðið er að tryggja áreiðanlegri siglingar og draga úr þeim vandamálum sem hafa fylgt höfninni frá upphafi.

Nýr verktaki tekur við í haust

Dýpkun hefur verið í höndum Björgunar undanfarin ár, en framkvæmdir hafa tafist bæði vegna bilunar í skipi og erfiðra veðuraðstæðna. Nýlega var samið við belgíska fyrirtækið Jan De Nul sem tekur við dýpkun frá og með haustinu.

Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar

Vegagerðin hefur samið við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar árin 2026 til 2029. Jan De Nul sérhæfir sig meðal annars í dýpkunarframkvæmdum og er meðal stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði, með starfsemi víða um heim. Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að verkefnið hafi verið boðið út í lok desember og […]

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.