Eyjakvöld í Grindavík
Grindvíkingar og Vestmannaeyingar hafa ávallt tengst sterkum böndum enda myndarleg sjávarútvegspláss, öflugir íþróttabæir og menningin blómstrar á báðum stöðum. Í Menningarvikunni fáum við góða heimsókn frá Vestmannaeyjum þegar sönghópurinn Blítt og létt mætir og verður með Eyjakvöld á Salthúsinu laugardaginn 12. mars næstkomandi.
�?ar verða leikin Eyjalög og textum varpað á skjá fyrir almenning til að syngja með. Eyjalögin eru dýrmætur menningararfur sem halda verður á lofti til framtíðar.
Sönghópurinn Blítt og létt var Bæjarlistamaður Vestmanneyja 2015. Hópinn skipa valinkunnir Vestmannaeyingar eins Finnur á nikkunni, �?li í Laufási, Simmi og Unnur í Viking, Diddi í Logum, Biggi Nielsen, Davíð í Tölvun, Grímur kokkur, Páll Viðar, Tóti í Dans á Rósum og Helgi Tórshamar. Fjölmargir aðrir valinkunnir einstaklingar hafa síðan leikið og sungið með hópnum og aldrei að vita nema Grindvíkingar verði þar á meðal. Hópurinn hefur staðið fyrir svokölluðum Eyjakvöldum mánaðarlega í nokkur ár. Ávallt hefur verið húsfyllir. Að sögn Davíðs Guðmundssonar, eins af forsprökkum Blítt og létts, myndast ávallt góð stemmning. Allir geta sungið með því textinn er á skjánum og því getur hver og einn sungið með sínu nefi. Inn á milli eru sagðar skemmtilegar Eyjasögur sem tengjast lögunum á einn eða annan hátt. Sönghópurinn hefur slegið í gegn undanfarin ár og spilað í Hörpunni, í ráðherraveislu og fleiri opinberum stöðum. Eyjalögin, t.d perlur þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í bæ eru dýrmætur menningararfur sem Eyjamenn eru duglegir að halda ál ofti. Blítt og létt hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar til að svo megi verða. Færeyingar hafa fengið að njóta ljúfra tóna hópsins og í náinni framtíð stendur til að halda vestur um heim og kynna Eyjalögin þar.
Miðaverð er 2.500 og er selt við innganginn.
Grindavik.is greinir frá.

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.