Eyjamenn jöfnuðu metin í úrslitarimmu Íslandsmótsins í handbolta með því að leggja Hauka að velli í kvöld 25:23. Á brattann var að sækja hjá Eyjamönnum framan af leik en Haukar voru yfir í hálfleik 10:23. En leikmenn ÍBV mættu mjög grimmir til leiks í síðari hálfleik, náðu fjögurra marka forystu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en Haukar neituðu að gefast upp. Um tíma voru Eyjamenn aðeins fjórir gegn sex og Haukar náðu að minnka muninn í tvö mörk. En lengra komust þeir ekki og fögnuðurinn í leikslok var gríðarlegur.
Stemmningin var með ólíkindum í Eyjum í kvöld og áhorfendur létu vel í sér heyra frá fyrstu mínútu. �?að er ekki skrítið að leikmaður Hauka hafi líkt því saman að koma til Eyja og að spila í Makedóníu. �?ótt áhorfendur séu kannski fleiri á öðrum leikjum, þá er stuðningurinn hvergi meiri en í Eyjum. Hér er alvöru ljónagryfja og stuðningsmenn gefast ekkert upp þótt staðan sé ekki nógu góð inni á vellinum. �?að var líka vel til fundið að gefa ÍBV boli fyrir leik og ekki minnkaði stemmningin þegar allir voru hvítklæddir.
Eins og áður sagði voru það Haukar sem höfðu yfirhöndina til að byrja með í leiknum. Haukar náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik, 5:9 en Eyjamenn náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikhlé. �?að tók Eyjamenn svo ekki nema fimm mínútur að jafna metin í síðari hálfleik. Eftir það skiptust liðin á að skora, allt þar til átta mínútur voru eftir. �?á náðu Eyjamenn frábærum leikkafla, breyttu stöðunni úr 21:21 í 25:21 og aðeins um fjórar mínútur eftir. En Haukar neituðu að gefast upp. Sindri Haraldsson fékk sína þriðju brottvísun og stuttu síðar fékk Grétar �?ór Eyþórsson einnig að fjúka út af. En það kom ekki að sök og eins og áður sagði brutust út mikil fagnaðarlæti í leikslok.
Nú er staðan 1:1 í rimmu liðanna en þau mætast að nýju á laugardaginn í Hafnarfirði.
Mörk ÍBV: Grétar Eyþórsson 7/3, Róbert Aron Hostert 6, Agnar Smári Jónsson 3, Theodór Sigurbjörnsson 3, Guðni Ingvarsson 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Magnús Stefánsson 1, Sindri Haraldsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 9, Henrik Eidsvaag 2.
Meðfylgjandi er myndbandsviðtal við Róbert Aron Hostert.