Morgunblaðið heldur úti skemmtilegri tölfræði um Pepsídeild karla sem blaðið birtir vikulega á meðan Íslandsmótinu stendur. Í tölfræðinni kemur m.a. fram að Eyjamenn skjóta oftast á markið. Þá er af sem áður var að fæstir mættu á leiki ÍBV, því samkvæmt samantekt Morgunblaðsins þá er ÍBV í 9. sæti yfir mestu aðsókn, fyrir ofan Stjörnuna, Grindavík og Fram en að meðaltali hafa 963 mætt á þá þrjá heimaleiki sem búnir eru.