Eyjarnar landa á Djúpavogi
Eyjarnar landa
Systurskipin í Heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir á Djúpavogi í gær. Þeir voru kallaðir inn vegna þess að fisk vantaði til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Heimasíða Síldarvinnslunnar heyrði í skipstjórunum og spurði frétta.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að túrinn hafi verið þokkalegt juð. „Við fórum út frá Eyjum á fimmtudagskvöld. Byrjað var á að taka tvö hol á Vík og Pétursey og síðan var haldið á Höfðann. Við þurftum að flýja frá Höfðanum því þar var vitlaust veður og þá var haldið austur á bóginn. Við fengum þokkalegasta afla í Hvalbakshallinu og Utanfótar og þar var mest um ýsu og þorsk að ræða. Landað var síðan rúmlega 60 tonnum af ágætum fiski á Djúpavogi,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, hafði svipaða sögu að segja. „Við héldum til veiða á föstudagsmorgun og byrjuðum á Höfðanum. Þar var býsna rólegt. Þá var siglt austur eftir og mest veitt á Grunnfætinum og Utanfótar. Aflinn var nánast eingöngu þorskur, ágætis fiskur. Þarna var þokkalegasta nudd og haldið var til lands með um 60 tonn. Ég reikna með að fara eitthvað vestur eftir að löndun lokinni,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.