Eyjarnar landa í Neskaupstað
Eyjarnar 20250826 081915
Landað úr Vestmannaey VE. Á bakvið hana er Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Að undanförnu hafa togarar Síldarvinnslusamstæðunnar verið að veiðum á Austfjarðamiðum. Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í Grindavík í gær og Gullver NS landaði þá á Seyðisfirði. Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey og Bergey eru síðan að landa í Neskaupstað í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að veiðiferðin hefði verið heldur löng og erfið. Víða hefði verið veitt en fiskurinn virtist vera dreifður og það hentaði togveiðum ekki sérlega vel á meðan línuskip væru að mokfiska. “Við fórum afar víða í túrnum og vorum mest fyrir austan land. Við byrjuðum í Lónsbugt og síðan var haldið í Berufjarðarál og var lítið að hafa á báðum stöðum. Þá var haldið á Mjölskipið og Grunnfótinn og þar fengum við tvo þokkalega daga. Síðan var farið á Örvæntinguna, í Hvalbakshallið og á Öræfagrunn. Loks var stoppað í Reynisdýpinu og þar fékkst dálítill ufsi. Í aflanum var mest af ufsa en síðan var þetta ýsa og þorskur. Þetta voru fimm sólarhringar að veiðum og það er of langur tími þó einhvern tímann hefðu menn verið þokkalega sáttir við veiði eins og þessa. Það verður haldið til veiða á ný fljótlega eftir löndun,” sagði Einar Ólafur.

Gullver landaði 90 tonnum á Seyðisfirði og var Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri ekki ánægður með túrinn. ”Veiðarnar gengu heldur erfiðlega en við reyndum allar bleyður frá Stokksnesi og norður á Gletting. Aflinn var fyrst og fremst þorskur en síðan bland af ufsa, ýsu og karfa. Veður var sæmilegt framan af en þetta endaði í bölvaðri brælu. Það verður haldið til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni,” sagði Hjálmar Ólafur

Skipstjórarnir Jón Valgeirsson á Bergey og Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey sögðu að skipin hefðu fylgst að á veiðunum. Byrjað var á Glettinganesflaki, síðan haldið á Gula teppið og loks restað Utanfótar. Bæði skip voru með tæp 60 tonn og var aflinn mest ýsa og þorskur. Sögðu þeir að bræludrulla hefði verið megnið af túrnum og aflabrögðin einkennst af óttalegu sargi. Bæði skip munu halda til veiða á ný í kvöld, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.