Fasteignaverð í Vestmannaeyjum hefur hækkað um 70% síðan fjármálakerfið féll hér á landi í lok árs 2008. Á sama tíma hefur verðið hækkað um 15-16,5% á Akranesi og Akureyri, en lækkað um 5,4-6,5% í Reykjanesbæ og í Árborg. �?etta kemur fram í Hagsjá Landsbankans, en þar er sagt að mikil tenging við sjávarútveg og sterkt og stöðugt atvinnulíf skýri mikinn hluta af þessari þróun í Eyjum.
�?egar nafnverð íbúða í dag er skoðað sést að meðaltalsfermetraverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu er þó enn talsvert hærra en úti á landi. �?annig er fermetraverð á Akureyri um 70% af verðinu í Reykjavík, en á bilinu 53-61% í hinum sveitarfélögunum. �?essi mikla hækkun í Eyjum hefur því orðið til þess að fasteignaverð þar er orðið sambærilegt því sem gerist á Akranesi, Reykjanesbæ og Árborg.