Fasteignir í Vestmannaeyjum hækka um 10,4% samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2011. Vestmannaeyjar skera sig úr hvað varðar fasteignamatið því á landinu öllu lækkar fasteignamat um 8,6% að meðaltali og íbúðarhúsnæði á landinu öllu lækkar um 10%. Fasteignamat hækkar einnig í Skútustaðahreppi, 7,7%, Grýtubakkahreppi 6,5%, Höfn í Hornafirði 5,5% og í Akrahreppi, Fljótsdalshreppi og Ásahreppi 3,2-3,6%. Að meðaltali lækkar fasteignamat á Suðurlandi um 3,4%. Af þessu má sjá að sérstaða Eyjanna í kreppunni er talsverð.