Búið er að taka ákvörðun um að fella seinni ferð Herjólfs í dag niður. Skipið hefur ekkert siglt milli lands og Eyja síðan á þriðjudagskvöld. Athuga á með morgunferð föstudagsins klukkan 7:00 í fyrramálið. Það er hins vegar ljóst að ef skipið siglir ekki á morgun, fer að gæta vöruskorts í Vestmannaeyjum. Þetta staðfestir Ingimar Georgsson, kaupmaður í Vöruval.