Nú styttist í að hátíðahöldin á Goslokahátíðinni hefjist en dagskrá hátíðarinnar er glæsileg og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Eyjamenn hafa tekið upp á því að skreyta húsin sín í kjölfarið og munu iðkendur í Fimleikafélaginu Rán ganga í hús og selja Goslokaveifur, sem hægt er að hengja upp utandyra.